Það var spurð spurning um Tony Hawk 3 hér fyrir stuttu en henni var aldrei svarað og ég ætla bara að svara spurningunni.

Hvernig skal <i>invert the high wires</i> í Cruis Ship borðinu.
Tæmið vatnið úr sundlauginn (það er rör nálægt sundlauginni sem þið þurfið að grinda) og farið svo í laugina og reynið svo að komast eins hátt upp í loftið og þið getið (gott að gera boneless eða fastplant (tvisvar upp áður en þú sleppir stökktakkanum)) og þegar þið náið í vírinn þá notið þið lip-trikkið invert.

Og svo var líka spurt hvernig stöðva ætti bílaeltingaleikinn í LA borðinu.
Ég get ekki lýst því almenni lega en það eru fjögur rail sem þú þarft að grinda. Fyrsa er beint framundan þegar þú byrjar og ert kominn niður stigann (þetta í göngunum, vinstra megin). Næsta er þegar þú ert kominn niður næstu tröppur beint til hægri og eftir það beygirðu til hægri og grindar railið sem er á gangstéttinni og liggur uppávið. Það seinasta er til vinstri við byrjunina. Þú ferð framhjá vírnum sem liggur upp á þak og þá ættirðu að sjá tvö rail. Grindaðu það sem er vinstra megin.

Ég vona að þetta komi að notum.<br><br>Kíkið endilega á síðuna mína
<a href=http://kasmir.hugi.is/MaD/>Síðan mín</a>
Ég vara ykkur samt við því þar ríkir brjálæði (<b>MaD</b>ness)