Hér á eftir fylgir linkur á grein úr The Mail sem síðan ps2hardcore.co.uk birti fyrir stuttu. Í greininni eru birtar skoðanir almennings á leiknum GTA3 og þar kemur í ljós að fólk er ekki beint ánægt með hversu ofbeldisfullur leikurinn er. Það er satt að þessi leikur sé ofbeldisfullur… en hann er bara svo drullu skemmtilegur. Og þótt mér finnist hann skemmtilegur þá þýðir það ekki að ég eigi eftir að æða út eftir spilun, fá mér haglabyssu og drepa tugi manna, þvert á móti. Eftir spilun er ég bara búinn að fá betri sönnun á því hvaða afleiðingar glæpir hafa. Í greininni er skondið að sjá hvað fólkið sem “commentar” um leikinn veit í raun og veru lítið um hann því að í greininni eru margar villur og rangar staðreyndir um leikinn.

Greinin:

http://www.bml.net/ps2hardcore/ps2hardcore/news/news_0020.htm

Hvað finnst ykkur um þetta mál?