Spurning um að kynna sér hvað þú ert að kaupa þér… Ég hef aldrei haft hug á að kaupa mér PS3 en ég vissi nú samt strax í fyrra að 40gb útgáfan spilaði ekki PS2 leiki og að hún yrði eina fáanlega útgáfan í Evrópu :)
Þetta er einfaldlega PS3 sem getur ekki spilað PS2 leiki og hún hefur færri USB ports og enga minniskortalesara…Hinsvegar err…Eina sem hún hefur fram yfir hinar gerðirnar er það að hún notar 60 nm örgjörva sem á víst að kosta minna og sparsamari n'shit…
Tja, ég var nú að lesa á psxextreme.com um daginn að Sony er að “restocka” 80GB útgáfuna vegna þess hversu vinsæl hún er - þeir komust víst að því að það skiptir ekki máli 100$ munur - fólk vill alltaf það besta.
Afsakaðu þetta með *restocka* - ég bara man ekki íslenska orðið:X
Neinei sko 40 gb hefur ekki minniskortalesara eins og allar hinar…Sem þýðir einfaldlega það að þú getur ekki verið að setja svona SD/Mini SD kort sem þú notar í myndavélar n'shit og tengt…
Hinsvegar geturðu lagað allt þetta sem vantar á 40 gb með eftirfarandi:
1. Þú getur aukið USB ports með því að kaupa USB port millistykki sem inniheldur skrilljón ports í einu.
2. Þú getur lagað minniskortalesara vandann með því að vera með portable minniskortalesara sem þú tengir við.
3. PS2 leikjaspilun lagarðu annað hvort með því að eyða 10 þús kjéll í PS2 vél eða bara að bíða þangað til þeir finna leið til að hafa PS2 spilun með system update :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..