Ég spurði fyrir stuttu á Leikir áhugamálinu hvort að það væri hægt að spila leiki keypta í Bandaríkjunum á Wii tölvu keyptri hérna.

Ég fékk að vita að ég þarf mod kubb til þess.

Svo getur einhver hérna bent mér á hvar ég get fengið svona kubb og hvert ég get farið með tölvuna til að láta setja hann í? Og er eitthvað sem getur eyðilagst við það?

Leikurinn sem ég er að eltast við er annars nýji Fire Emblem leikurinn á Wii sem var að koma út í dag í Bandaríkjunum. Veit einhver hvenær hann á að koma út í Evrópu? Ef það er stutt í það gæti þetta verið óþarfa vesen hjá mér.