Ég var að komast yfir eintak af X-BOX(USA) og hef prófað eftirfarandi titla:

Munch's Oddysee
Halo
Project Gotham Racing
Dead or Alive 3

Persónulega hef ég ekki mikin áhuga á slagsmálaleikjum en DOA3 er án efa flottasti leikur af sinni tegund á markaðnum. Ekkert sem ég hef séð á PS2 kemur nálægt þessu, bæði í grafík og skemmtanagildi. Eini likur sem ég hef getað spilað fyrir utan gamla Virtua Fighter í spilakassa.

PGR er mjög líkur GT3, hægt að sérstilla næstum allt í þessum leik. flottur en kannski ekki við mitt hæfi.

MO er hryllilega flottur smooth as hell, þrátt fyrir mjög flotta grafík. Spilun minnir mig svolítið á Lost Vikings, þar sem þarf að skipta á milli persóna til að leysa þraut svo að hin persónan geti haldið áfram. Camerann (sjónarhorn) sem er stjórnanleg vinnur líka að hluta til sjálfkrafa er svo smooth að það er hreinn unaður að horfa á umhverfið í kingum persónuna.

HALO, fullkomun, ekkert annað, grafíkinn á sér enga sér líka.
Það eru ekki til nógu stórkostleg orð til að lýsa þessum leik.
Sjáið þetta sjálf.

BT ætti að vera kominn með 1 eintak af XBOX í dag eða eftir helgi

Þetta eru bara mínar skoðanir og eftir að hafa prófað hverjan leik í ca 30mín.

XBOXið sjálft er frekar stórt, MJÖG hljóðlátt.
Stýrispinnarnir er nokkuð stórir, kannski of stórir fyrir smáar hendur en þeir passa mjög vel fyrir mig.
Hef ekki náð að prófa DVD á´XBOX en það er líka aukaatriði í mínum augum.

Lokaniðurstaða:
Ég var að bíða eftir því að kaupa mér nýja leikjarvél þangað til að ég væri búinn að sjá hvernig XBOXið kæmi út miðað við PS2 og ég verða að segja að ég mun ekki kaupa mér PS2.
Ég bíð að vísu spenntur með að sjá GameCube frá Nintendo þótt að ég búist ekki við miklu. Verður samt gaman að sjá StarWars leikinn. Ég hef ekkert á móti Nintendo það er bara mín skoðun að fyrirtækið sé að stefna í sömu átt og Sega. Einnig eftir að hafa átt N64 þá treysti ég þeim ekki lengur með að fá fyrirtæki til að framleiða góða leiki fyrir hana.

með kveðju


<br><br>[Necro]Shmeeus
Clan <a href="http://www.slingshot.to/necro“>Necrophiliacs</a>
”What a beautifull corpse“
Mappið mitt <a href=”http://www.hi.is/~mgj/tilraunir/clan/maps.html“>dod_dalur</a> sem er í beta 2
<a href=”http://www.dayofdefeatmod.com">Day of Defeat</a
Xbox360 Gametag: Shmeeus