Sælt veri fólkið. Ég er óttalegur Sony byrjandi. Hef aldrei átt Sony vél og veit ekki hvort það muni breytast með komu PS3, það mun allt koma í ljós síðar.
En ég ákvað að tjékka púlsinn á ykkur með PS2 tölvurnar ykkar. Kærastan mín var að missa sína heittelskuðu PS one og mig datt í hug að vera krúttlegur og gefa henni bara PS2 til að bæra upp fyrir missinn.

Er ekki einhver hérna sem var að fá sér PS3 og sér engan tilgang í að eiga tvistinn lengur eða tölvan einfaldlega farin að safna ryki og langar þess vegna að styrkja gott málefni og selja mér eina slíka á slikk? :)

Endilega dælið í mig tilboðum og ekki okra á mér. Skal jafnvel skoða einhvern pakka með djúsí leikjum fyrir stelpur.
Hjálpiði mér við að ‘lose my Sony virginity’ og brjóta blað í sögunni með að kaupa mína fyrstu Sony tölvu ;)