Ég er búin að fá nóg af Pc sem leikja tölvu og hef ákveðið að snúa mér að xbox360 til að uppfylla þær þarfir.

Ég var að velta fyrir mér hvort það væri hægt að fá lyklaborð og mús fyrir xbox360 svo maður geti notið fyrstu persónu skotleikja til fullnustu. Hefur einhver persónulega reynslu af þessu og getur miðlað henni? Ég hef sérstakan áhuga á að vita hvort hægt sé að spila es: oblivion með lyklaborði og mús á 360. Takk fyrir svarið.