Ég er í smá vandræðum og vantar aðstoð við að finna þessa tvo leiki:

Easy part first: Leikur sem ég sá í GameTv fyrir þó nokkru síðan. Held þetta hafi verið PS2 leikur. Er um gaur sem þarf að drepa einhverja risa og spilunin er víst bara þannig að þú ferðast um á hestinum þínum til þeirra og svo gengur þetta bara út á að reyna að komast upp á hausinn á þeim.

Og svo kemur erfiði hlutinn: Þetta er NES íþróttaleikur sem er tileinkaður Ólympíuleikunum.
Einu upplýsingarnar sem ég hef er að hann er mjög líkur Hyper Olympic og að merki Ólympíuleikanna er í honum.

Margar þakkir ef þið getið bennt mér á þessa leiki, þó sérstaklega þann síðar, því ég finn hann engan veginn! :)