Ég er með til sölu kubb sem þú getur skrifað á hvaða GBA leik sem þig langar til að spila.
Kubburinn er settur í GBA leikjatölvuna og tölvan svo tengd við PC tölvu. Þar er settur inn ákveðinn hugbúnaður, GBA leikir valdir og skrifaðir beint á kubbinn í GBA tölvunni.

Kubburinn tekur 2 GBA leiki og mun fleiri Nintendo leiki (þessir gömlu góðu) og þú getur skrifað yfir hann aftur og aftur og aftur.

Þessi pakki inniheldur:
Flash kubb til að skrifa á (lítur alveg eins út og GBA leikur)
Snúru til að tengja í GBA leikjatölvuna og í prentara port á PC tölvunni (paralell)
Disk með hugbúnaði til að skrifa leikina, ásamt leiðbeiningum um hvernig á að nota græjuna.
Disk með yfir 500 GBA leikjum til að skrifa á kubbinn (þú þarft aldrei að kaupa Gameboy advance leik aftur)

Verð, 5000 kr.