Ég er hérna að spila þennan nýjasta Zelda á Wii tölvunni og þetta er alveg fáranlegt.

Ég er rétt svo nýbyrjaður, er ennþá í þessu ekkisens þorpi þar sem ég á að gefa einhverjum djöfulsins ketti fisk en það bara er ekki hægt.

Ég get ekki veitt fiskinn, þegar ég tek stöngina upp úr vatninu að þá fylgir aldrei neinn helvítis fiskur með. Þetta heppnaðist í fyrstu tvö skiptin en síðan bara ekkert. Þetta er að gera mig fokkin ruglaðann. Ég er farinn að halda að þetta sé galli, ef að allur leikurinn er svona fokkin þreytandi og leiðinlegur að þá er ég illa svikinn.

Hvernig í ósköpunum veiðir maður fiskinn?