Twilight Princess á þessu ári!
20. maí 2005 00:11 - Tegund: Fréttir
Margir vita nú af því að nýr Zelda leikur er á leiðinni sem ber nafnið The Legend of Zelda: Twilight Princess.

Nintendo höfðu gefið í skyn að leikurinn kæmi út í Bandaríkjunum í nóvember og eitthvað síðar í Evrópu en nú er annað að koma í ljós. Nintendo ætla að gefa Twilight Princess út um allan heim á þessu ári þannig að við munum spila leikinn vonandi fyrir jól eða um jólin.
Sannarlega góðar fréttir!

Yfirlit yfir E3 sýninguna í Los Angeles: Fylgist með á Nintendo.is núna um helgina, en þá verða settar inn umfjallanir um helstu leiki og fréttir frá E3. Leikir fyrir GameCube, DS og Game Boy Advance, fréttir og slúður tengt Nintendo, ásamt auðvitað umfjöllun um Revolution.
————————————————–