Sko ég er að spá í að fá mér 2 af þessum leikjum.

Prince of Persia The Two Thrones
GTA Liberty City Stories
Tomb Raider Legend
(Allir á PS2)

Ég er mjög mikið fyrir svona leiki eins og PoP og mér fannst Sands of Time vera mjög góður en warrior within frekar slappur, er þessi betri en hinir og eða er eitthvað varið í hann.

Svo með Tomb Raider, ég er ekki neinn svakalegur tomb raider fan en ég hef samt spilað allavega tomb raider 1, 2 og 3 en er þessi skemmtilegur.

Er LCS góður og er hann kannski bara betri útgáfa af 3 því ég á ekki GTA 3 en ég hef samt prófað hann og mér fannst hann mjög góður.

Endilega segið hvaða leiki af þessum ég ætti að fá mér.