Spoiler eða ekki Spoiler, látum það flakka.

Lendi í frekar furðulegu og leiðinlegu máli með þetta quest.
Málið er það, questið gengur út á það að finna hálsmen fyrir konu (Dagail, minnir mig) og skila því til hennar. Mér er bent á að tala við Karthar þar sem hann á eitthvað að vita um málið. Ég gerði það og komst að því að hálsmenið liggur í grafreit í sveitinni. Þegar þangað að er komið og búinn að berjast við fullt af köllum og kominn með hálsmenið, þá birtist Karthar og ÁTTI að segja eitthvað við mig. Vill ekki betur til enn það að ég drep manngreyjið áður enn hann kemur upp orði, Sem þýðir að ég get ekki klárað questið og þar afleiðandi ekki gengið í Guildið! Hefur einhver lausn á þessu. (Ekki segja mér að Loada, þar sem það er ekki í boði lengur) :)