Mig sárvantar hjálp við að finna nafn á NES leik sem að ég spilaði í tætlur þegar að ég var krakki, svona 6-8 ára. Söguþráðurinn var einhvernveginn þannig að einhver fúll og leiðinlegur strákur sogaðist inní sjónvarp og einhverjir aðrir kallar fóru inn í sjónvarpið til að bjarga honum. Síðan voru t.d. borð þar sem maður barðist við stóra górillu, hoppaði upp íbúðarblokk og þurfti þá að forðast að fá blómapotta í hausinn. Þegar að leikurinn byrjar þá sést fúli gaurinn eitthvað, síðan sést sjónvarpið en meira man ég ekki. Met það mikils ef að einhver veit hvaða leik ég er að tala um.