Ég er að leita af NES leik.

Held að hann hafi verið einn sá síðasti til að koma út á nes afþví grafíkin var rosalega flott.

Hann gekk út á það að maður byrjaði sem bleikur eða appelsínugulur kall, og maður þurfti að bjarga vinum sínum. síðan þegar maður var búinn að bjarga þeim gat maður spilað þá. Ég man það var annar grænn kall sem var eins og froskur eða eitthvað og mig rámar mjög í hvítann kall. Ég er búinn að leita mjög lengi af honum á netinu, en ég man engin nöfn úr honum eða neitt. Þetta einhverjar bollulegar veirur.

Ég hélt ég væri dottinn í lukkupottinn þegar ég sá þessa síðu en ég er búinn að renna yfir þessi screenshot þrisvar sinnum og ég sá ekkert sem ég man eftir úr leiknum sem ég er að leita af. Þetta er það næsta sem ég hef komist við að finna hann.
http://bisqwit.iki.fi/nesvideos/movies.cgi?systemid=1


Minnið mitt er mjög riðgað, væntanlega útaf allri þessari tölvuleikja spilun :P

en ég bara verð að spila þennan leik aftur!

Ef einhver hefur einhverja hugmynd um hvaða leikur þetta gæti verið eða hvar ég get rennt í gegnum einhvern lista eða eitthvað þá er hann hetjan mín!