Vá! Ég, sveitastrákurinn sjálfur fór á stórhöfuðborgarsvæðið, í Elko og prófaði NBA Live 2006, og graffíkin er svo flott maður, þetta var í einhverju practice mode þannig að það var alltaf stór skjár af karlinum bakvið körfuna, og ég kom karlinum á góðan stað þar sem ég sæi hann stórann, og djöfull er allt raunverulegt, ég vissi ekki hvort ég væri að horfa á bíómynd eða ekki vegna þess að svitinn hann var bara eins og í alvörunni þegar maður svitnar í íþróttum, svo lekur hann alltaf niður kynnarnar og þannig.

Þið sem hafið séð þetta vitið hvað ég meina, ég gæti gert ritgert um þetta vegna þess að ég stóð bara þarna með gæsahúð, bókstaflega!