Góðan daginn.

Ég er að spila Half-Life 2, og kann vel við. Er reyndar búinn að vera að spila hann lengi, en það er í góðu, vegna þess að hann er ekki enn orðinn leiðigjarn, en er nú farinn að nálgast endann.

Vandinn sem ég stend frammi fyrir er að ég er kominn í kaflann sem kallast “Follow Freeman”, en þar þarf ég að byrja á að takast á við nokkrar leyniskyttur, enn einum af aðalköllunum í mínu liði, Barney, er haldið í sjálfheldu af þessum skyttum. Ég held að ég sé búinn að finna þær allar, en Barney segir að enn sé ein eftir, og þorir þess vegna ekki að gera neitt. Ég er búinn að henda handsprengjum í alla glugga sem ég sé, en Barney vill ekki hreyfa sig. Vegna þess er ég að óska eftir einhverjum sem er búinn að klára þennan leik á Xbox,eða alla vega búinn með þennan kafla, en ég er ekki viss um að Pc útgáfan sé alveg eins. Ég er búinn að leita mér að leiðbeiningum, en engin virðist getað hjálpað mér, en ég er ekki viss hvort að það hefur allt verið fyrir Pc útgáfuna.

Fyrirfram þökk.