Sæl veriði

Er staddur á fyrst “endakallinum” í þessum leik, hann stendur uppá svona auglísingaskilti or some og er að skjóta á mann sprengjum. Maður á að yfirheyra hann.

Nú var ég að spá hvort það væri ekki einhver þarna sem að væri til í að segja mér hvað í anskotanum maður á eiginlega að gera þarna? Er búinn að reyna að drita á hann með öllum byssum eins og ég eigi lífið að leisa, en ekkert virðist virka, og ég veit ekki hvað annað er hægt að gera.

Endilega ef þið vitið þetta segið mér það þá, nenni ekki að vera alltaf að vinna allt borðið uppá nýtt bara til að fatta þetta :P