Keypti mér þennan leik í BT fyrir 2 dögum.
Þetta er sakamála/action leikur þar sem þú ferð í spor nokkurra persóna.
Maður drepur annan mann á veitingastað og veit ekki af hverju því hann var í einhverskonar dái.
Maður leikur bæði morðingjann og lögreglumennina og átt að komast að því hvað fékk manninn til að gera þetta.

Ég nenni nú ekki að fara ofan í smáatriðin en þessi leikur kom mér mjög á óvart og öll smáatriði sem þú gerir hafa áhrif á hvernig leikurinn fer. Virkilega svalur leikur en ég er ekki kominn langt.

Er einhver annar hér sem hefur prófað hann og hefur eitthvað að segja af honum?