Loksins kominn með eintak eftir nokkra ára bið.

Ég varð bara að koma og segja hvað þetta er ótrúlegur leikur. Flottasta grafík sem ég hef séð (og ég hef spilað doom 3 og half-life 2). Sum umhverfin eru svo ótrúlega flott að þau eru nánast alveg eins og pre-rendered backgroundarnir í re1 og re0, alveg fáránlegt.

Sérstaklega flott þegar það er þrumuveður með rigningu og svo kyndlar hér og þar sem eru ótrúlega raunverulegir.
Líka mikið af svona einhverskonar easter eggs (ekki alveg viss hvað ég á að kalla það) t.d. ef þú stendur á bryggjunni áður en þú ferð í bátinn í fyrsta skiptið og skýtur nokkrum sinnum út í vatnið ;)

Mæli með að allir kaupi sér þennan leik.