Ég hef í huga að kaupa mér DVD-spilara til að hafa inni í herbergi en datt svo í hug um daginn að kaupa bara PS2. Ég hefði nefnilega ekkert á móti því að eiga eitt svoleiðis stykki og svo er nánast enginn verðmunur.

En svo fór ég að íhuga, er eitthvað varið í DVD-spilarann í PS2? Og hvaða svæði spilar hann? Stór hluti af mínu safni er nefnilega keyptur í Bandaríkjunum og enn stærri hluti er skrifaður, ég efast um að spilarinn spili þá diska?