Samkvæmt http://www.gamespot.com hefur Hideo Kojima tilkynnt ný og djúsi extra efni fyrir PAL útgáfuna af Metal Gear Solid 3: Snake Eater.
Þær munu vera:
- Duel Mode sem gerir spilaranum kleift að keppa á móti öllum endaköllunum í röð án þess þó að spila allan leikinn.
- Demo Theatre, kaflaskipting á myndskeiðunum í leiknum.
- European Extreme, já það er komið aftur. Fyrir þá sem eru gjörsamlega geðveikir (ég meðtalinn) er komið erfiðleikastig sem að Bandaríkjamönnum var ekki treyst fyrir :)
- Tvö ný borð í Snake vs. Monkey aukaleiknum.
- Ný face - paint, þar á meðal þau sem unnu í “Camouflage Creation” keppninni sem að Konami stóð fyrir.

Fyrir þá sem hafa áhuga er hlekkurinn hér - http://www.gamespot.com/ps2/index.html?tag=gs_head_ps2
—————————-