Mig langar að segja ykkur frá mótorhjóli sem vinur minn fann þegar við vorum að leika okkur í GTA:SA. Hjólið heitir NRG-500 og er öflugasta hjól leiksins, ef ekki öflugasta landfarartæki leiksins. Það kemst svívirðilega hratt og er ekkert smá snöggt að ná hraða. Það þolir lýgilega mikið hnjask og er virkilega flott (NB: það er hægt að fá það í ýmsum litum og láta sprauta það í Pay n' spray að sjálfsögðu).

Það eru tvö hjól í bílastæðahúsinu sem er merkt rautt á þessari mynd, eitt á annari hæð og annað á efstu hæð.