Ég vil selja Ps2 tölvuna mína, ég hef átt margar góðar stundir með henni en nú er svo komið að hún tekur frá mér of mikinn tíma. Ég er kominn í menntaskóla og æfi íþróttir og þá er lítill tími fyrir bestu leikjatölvu allra tíma með hinu tvennu og auðvitað félögunum.

Tölvan er vel notuð en hún er þriggja og hálfs árs.
Hún virkar samt vel enda vel farið með hana.

Ég á tvær fjarstýringar: önnur virkar fullkomlega en L2 takkinn á hinni er ónothæfur en ég hef þó aldrei reynt að laga það.

Leikir: James Bond: Everything or nothing
NBA Live 2005
Madden NFL 2005
NHL 2k3
The mark of kri
Driv3r
Socom U.S. Navy Seals með headsetti
Rune Viking Warlord (Þennan leik máttu brenna, hann er móðgun við forfeður okkar víkingana og meiri móðgun við samfélagið í sjálfu sér)
Silent Scope

Og svo koma bestu stykkin

Red Dead Revolver
True Crime Streets of LA
GTA Vice City
GTA 3
The Getaway

Það er það komið, sendið mér skilaboð ef ykkur finnst eitthvað varið í þetta og nefnið verð sem þið eruð tilbúin að borga fyrir.
Snoother