Vil biðja þann sem sendi inn könnunina sem fór í loftið í gær afsökunar á því að hafa óvart eytt henni. Ætlaði að bæta inn valmöguleikanum ‘Hef ekki spilað San Andreas’ þegar ég gerði mér grein fyrir að ég var á einni skólatölvunni sem bauð ekki upp á Íslenska stafi (er búsettur í Japan).

Nú ég smellti þá bara á ‘Hætta við’ valmöguleikann en þá álítur hugi greinilega að ég vilji henda allri könnuninni. Frekar kjánalegt.

Ef þú ert að lesa þetta og manst hvernig könnunin þín var þá máttu endilega senda hana inn aftur.