Halo 2 er kominn yfir 1,5 milljón eintaka pre-ordered og það er aðeins í USA. Þetta er samkvæmt öruggum heimildum af www.xboxaddict.com. Þeir eiga eftir að telja öll önnur lönd.

Þetta sýnir smá mynd af því hversu spennt fólk er yfir þessum leik. Enda hefur varla verið fylgst jafn vel með nokkrum öðrum leik í sögunni.

Þetta slær öll fyrri met og leikja-spekúlantar útí heimi eru að spá því að Halo 2 eigi eftir að bæta öll sölumet á fyrsta degi í öllum tegundum afþreyingar, og kvikmyndir taldar með!

Þessar fréttir eru rosalegar og sanna það að lekinn hafði svo sannarlega ekki mikil áhrif á sölu leiksins.

Halo 1 hefur selst í yfir 5 milljónum eintaka og er ennþá á topp-10 lista vikunnar yfir mest seldu leiki vikunnar á flestum stöðum heimsins.
Ég vil líta á mig sem hreinskilinn mann, þannig ef ég særi þig… then it just sucks to be you.