Hverjir vita af þessum leik hér á Íslandi!!!
Ég tók niður demóið af honum 29 september og hef verið gjörsamlega hooked síðan. Er sem sagt að velta því fyrir mér hvort og þá hvenær hann komi til landsins. Það sem ég get sagt fyrir mitt leyti um leikinn er það að loksins er kominn leikur sem hefur kostina úr Shogun, Medieval, Call to Power og Civilization svona til að telja einhverja fram og í raun úr mörgum fleiri leikjum af svipuðum toga. Þessi leikur hefur einnig að bera pólitík og svo er persónulegi þátturinn vinalegri og þá meina ég fyrirliðinn sem maður velur sér. Oh well ég gæti talað endalaust um þennan leik en tel að best sé að þið dæmið sjálf með því að skoða 1 umfjöllun á
http://www.strategyinformer.com/reviews/knightsofhonor.shtml og svo getið þið líka kíkt á aðalsíðu leiksins sjálfs http://www.knightsofhonor.com/
Vonandi verður þessi korkur leyfður því ég barasta verð að fá að vita hvort einhver hér á landi viti eitthvað um hvort þessi kemur til landsins eður ei :)