Hefur einhver tekið eftir því hversu líkt aðalstefið úr Metal Gear Solid 2: Sons of Liberty er stefinu í Speed? Ég var að horfa á þessa mynd frá '94 og hélt að Harry Gregson-Williams hefði gert tónlistina í myndinni og sótt svo í bankann þegar hann gerði tónlistina við MGS2. En nei, þeir sem komu að gerð tónlistarinnar voru Mark Mancina, John Van Tongeren og Billy Idol. Billy gerði eitt lag í myndinni, lagið “Speed” sem ég veit ekki hvernig hljómar, en efast um að það sé lagið sem ég er að hugsa um, þó svo að þetta eigi að vera titillag og lagið sem hljómar eins og það í MGS2 kemur ófáum sinnum fyrir í myndinni.<br><br><b>Q.e.d.</b>

<font color=“#C0C0C0”>______________________________________</font>
<font color=“#FF0000”>R</font>edfish