Getur einhver sagt mér eitthvað um þennan leik (This is football 2004)? Hann kom út bara fyrir stuttu í verslanir skilst mér en hann hafði víst tafist útaf einhverjum samningum um nafnaréttindi í leiknum eða eitthvað álíka. Ég fékk demo af honum niður í Elko og fannst mér hann spilast einhvernvegin furðulega miðað við FIFA 2004 sem ég er vanur að spila. En hann virðist geta verið ágætis skemmtun og þar sem ég er ágætis fótboltaáhugamaður langar mig þó nokkuð að kaupa hann. Ef einhver veit eittvhað endilega rita nokkrar línur um hvað ykkur finnst.

Takk takk.