Keypti SCPT í BT í dag. Prufaði strax online. Hann lofar góðu en er samt nokkuð flókinn og virðist þurfa töluverðan tíma til að setja sig inn í hann, sérstaklega þegar maður spilar sem spy. Einnig virðist hann vera nokkuð böggaður. Xbox-ið fraus hjá mér í fyrsta skipti t.a.m.

Kúl fítus sem ég las um en á eftir að prófa er að ef þér tekst að læðast aftan að merc og tekur hann hálstaki þá ýtir maður á hvíta takkann til að tala við viðkomandi svona rétt áður en maður hálsbrýtur hann… Hasta la vista! … Do you feel lucky? Punk!?

Endilega látið mig vita ef fleiri fá sér leikinn, væri gaman að spila saman nokkrir Íslendingar.