GameCube mótinu hefur verið seinkað til janúars!
Ekki panica, þetta er bara betra þannig. Ef þetta hefði verið haldið núna um helgina hefðum við verið fyrir jólatraffíkinni og jólatraffíkin verið fyrir okkur og truflað mótið. Eftir vangaveltur ákváðum við því að gera þetta bara flottara í janúar.
Í stað þess að vera með eina helgi, einn dag réttarasagt þá verður þetta tvo laugardaga í janúar og þetta verður spilað á gegnum skjávarpa og á tjald/vegg ásamt því að við fáum stórglæsilegt THX kerfi til að pumpa upp stuðið.
Þetta verður því þannig:
GameCube mótið verður EKKI núna á laugardaginn því við viljum gera þetta með fullum hug, ekki með jólastressið og traffíkina fyrir okkur. Þið hljótið að sjá að janúarstöffið líti betur út, tveir dagar í stað eins, sjávarpi og THX kerfi…
Tveir dagar: Fyrri dagurinn verður undir Super Smash Bros. Melee og F-Zero GX. Seinni dagurinn fer svo í Soul Calibur 2 og Mario Kart: Double Dash!!
Við stefnum að því að gera þetta bara flottara en upphaflega átti að vera og hafa meira gaman af þessu. Það er ekki verið að hætta við þetta, langt í frá, þessi ákvörðun var tekin með gæði og skemmtanagildi mótsins í huga.
Ég vona að þið takið vel í þetta og enn fleiri ákveða að mæta í janúar!
Kveðja,
ég
“You too will come to understand fear, as I have”
-Pious Augustus-
Þetta er undirskrift