Gott fólk, lend me your ears…
Ég hef verið að reyna að fá margt í gegn hjá þeim í Ormsson. Margt hef ég lagt á borðið og mörgu hefur verið gleymt af því. En það sem ég ætla mér að ná að koma í gegn er mót í leikjum.
Það sem ég vil að þið gerið er að þið skrifið undir hérna, með nicki eða eigin nafni, þið ráðið, og ég mun senda markaðsstjóra og verslunarstjórum Ormsson það. Ég hef mikinn vilja að koma þessu í gegn og ég hef reynt lengi og þeir hafa sýnt því áhuga. Það er ekki langt síðan að það munaði SVO litlu að Super Smash Bros. Melee mót yrði haldið í höfuðbúðum Ormsson, en það varð að engu. Enn og aftur, því miður.
Mig langar gríðarlega að koma upp móti í þessum mánuði og jafnvel í þeim næsta líka, jólamót t.d. Hvað er skemmtilegra en að hittast allir í móti í skemmtilegum leikjum og hafa gaman af? Hleypa smá lífi í Nintendo og sýna Ormsson að þetta er ekkert til að sofa yfir.
Þeir leikir sem ég sting upp á sem mótsleiki eru:
Super Smash Bros. Melee
Mario Kart: Double Dash!!
Soul Calibur 2
F-Zero GX
Time Splitters 2
Ef það eru aðrir leikir sem þið viljið frekar spila í, nefnið þá. Það er líklegast að það yrðu 2-3 leikir teknir í mót. Það færi eftir þátttöku hversu stórt þetta yrði og hvernig skipulagið verður.
Ef þetta fæst í gegn þá mun ég tilkynna ykkur það strax, hvenær það verður, hvernig og í hvaða leikjum.
Sýnið nú vilja ykkar og ég skal reyna að koma því í gegn.
Kveðja,
jonkorn
“You too will come to understand fear, as I have”
-Pious Augustus-
Þetta er undirskrift