Þar sem ég hef ekkert að gera eins og er held ég bara að ég skrifi smávegis um Smash Bros Melee

Það var fyrir ekki svo löngu að ég fékk að prófa Super Smash Bros Melee í fyrsta skipti; ég hafði spilað forvera hans í N64 og fannst þrumugóður, og var Melee ekki síðri. Skemmtilegast fannst mér “Break the targets”, “Home run contest” og “Multi-Man Melee” þar sem alltaf virtist vera hægt að gera betur og betur.
Eftir að hafa verið í Break The Targets dágóða stund (og búinn að ná 11,xx sek. með Roy, nokkuð góður tími fannst mér) fór ég að leita á netinu hver besti tíminn var (og hvort einhver hefði náð betri tíma með Roy, en ég hefði svo sem getað sagt mér svarið strax), og ég varð bara steinhissa á niðurstöðunum.

Álíka hissa og að það skyldi ekki vera til íslenskar umræður um þetta fyrirbæri. Ef að þeir sem stjórnuðu Nintendo.is myndu nú taka sig til og setja upp ‘Landsins bestu’ í Smash Bros væru hlutirnir kannski líflegri.

Með tímanum hafa þróast aðferðir til að geta brotið allar 10 skífurnar í Break The Targets með hverjum character á sem fljótastan hátt. Ég ætla nú að segja hvernig þær eru.
Tilbúin?


- Dr. Mario -

Þetta er það sem tekur einna lengstan tíma, ég var dálítið lengi að koma tímanum undir eina mínútu þegar ég byrjaði. Heimsmetið er 13,40 sek. og er talið óbætanlegt sökum þess að lyftan hefur fast kerfi sem hún færist samkvæmt.
1)Tvíhopp upp á pallinn fyrir ofan Dr. Mario. Tvíhopp upp á pallinn næst fyrir ofan og spark upp í loftinu til að ná því fyrsta.
2)Tvíhopp upp á pallinn fyrir ofan og skjóta í leiðinni hylki. Það lendir í skífunni sem er í öfuga C-inu.
3)tvíhopp til vinstri, skjóta hylki í skífuna sem er efst til vinstri þegar Dr. Mario er upp við það.
4)Detta til hægri, sparka í skífuna sem er vinstra meginn við lóðrétta bitann.
5)Lenda á palli sem er að hverfa, skjóta hylki.
Láta sig detta gegnum pallinn, hoppa til hægri í loftinu og gera ‘airdodge’ upp á við til að lenda á pallinum aftur þegar hann er farinn í gegnum bitann.
6-7)Tvíhoppa til hægri, sparka upp til að ná skífunni sem er þar OG þeirri sem er hinum megin við bitann. Jamm, sparkið drífur gegnum vegginn. Ef tvíhoppið dreif ekki er hægt að nota peningastokk til þess arna, það drífur líka í gegnum vegginn.
8)Lenda á toppnum á öfuga C-inu, skjóta hylki til vinstri.
9)Detta fram af C-inu hægra megin, hoppa í loftinu og peningastökk til að ná skífunni sem er undir lyftunni, lenda á lyftunni.
10)Þegar lyftan er farin upp, tvíhopp og peningastökk.


- Mario -
Met: 8,77 sek.
1)Hoppa til hægri og (snúnings-)sparka niður í fyrstu skífu.
2)Hoppa í loftinu að lóðrétta bitanum og sveifla skikkjunni í gegnum hann í skífuna sem er þar.
3-4)Detta á milli tveggja skífa, sparka upp í þau bæði. (Þetta er einhvers konar sveifluspark)
5)Hlaupa að og hoppa upp á bitann fyrir neðan staðinn sem maður byrjar á, skjóta eldkúlu í loftinu í skífuna lengst til hægri.
6)Hoppa upp á einn af þeim pöllum sem eru á niðurleið, skjóta í leiðinni eldkúlu í skífuna sem er þar vinstra megin.
7)Hoppa efst upp lyfturnar, skjóta eldkúlu í efstu skífuna (það er í lagi þó hún fari undir skífuna, hún skoppar af veggnum og hittir í bakaleiðinni).
8)Detta niður og skjóta eldkúlu gegnum þröngu göngin.
9)Færa sig til vinstri í fallinu og sparka til hægri í gegnum stutta bitann í skífuna sem er þar.
10)Þegar fram hjá bitanum er komið, hoppa í loftinu og skjóta eldkúlu í það eina sem eftir er.


- Luigi -
Met: 4,00 sek.
1-2)Hoppa til vinstri og vinstri-sparka í tvær skífur.
3)Detta smá, vinstri-sparka svo í eina skífu í viðbót.
4-5)Færa sig til hægri í fallinu og gera peningastökk rétt áður en lent er svo að Luigi grípi í tölvuna.
6)Handahlaupsspark
7)Hlaupa af tölvunni, hoppa í loftinu strax og sparka upp.
8)Eftir smá fall, sparka upp aftur.
9-10)Þegar Luigi er næstum lentur færast síðustu 2 skífurnar saman, sparka til vinstri til að ná þeim.


- Bowser -
1-3)Tvíhoppa upp, blása eldi og færa sig til vinstri í fallinu, lenda á pallinum fyrir neðan (Eða á flipparanum).
4)Hoppa upp (eða nota flipparann) og slá í skífuna þar.
5)Lenda hjá súlunni sem hangir, kýla skífuna í gegnum hana.
6-7)Detta í gegnum pallinn, nota UPP+B til að renna eftir pallinum gegnum eina skífu og í aðra.
Lenda á litla pallinum, þríhoppa svo upp þessar fjórar tröppur hægra megin.
8-9)Hoppa niður hægra megin, snúa skelinni við og reka gaddana í þessar tvær skífur á leiðinni (NIÐUR+A).
10)Hoppa og slá síðustu skífuna gegnum súluna.

Nú er klukkan orðin ansi margt, jafnvel of margt, þannig að ég held að ég hætti hér og klári þetta á morgun.