Ég skil alveg reiði þína. Sjálfur ætla ég að panta leikinn erlendis þótt að ég fái hann aðeins seinna. Bara ekki möguleiki að ég ætla að versla leikinn við BT eða Skífuna, eftir að þeir fresta leiknum viljandi. Ég held að þetta sé vegna Fifa 2004. Núna koma leikirnir báðir á sama tíma, en þægilegt…hmm…Ef PES3 átti að koma út 17. október í Evrópu og Fifa 2004 var alltaf settur á 23. okt hérna heima þá er það alveg kristalklárt að PES 3 var viljandi seinkað í 6 daga svo að hann komi ekki á undan Fifa 2004.
Þeir sem ætla að kaupa PES3, sleppið (ef þið getið) að kaupa hann frá BT eða Skífunni.