Eigiði einhverjar svona sérstakar minningar um einhvern leik…
Eða réttara að segja ef þið hugsið aftur í tíman eigiði einhverja ógleymanlegar minningar um einhvern leik?

Persónulega á ég þónokkrar enn sú besta var þegar ég spilaði final fantasy 7 sumarið 98´ það var magnað. þá kynntist ég final fantasy leikjunum fyrst og ég hneykslaðist alveg á vini mínum og sagði að þetta væri óttalegur bull leikur svo komst ég betur inn í hann og leikurinn hafði algjör tök á okkur. Aldrei hef ég á ævi minni upplifað annað eins. Ég man að ég var í unglingavinnuni þá og ég gat valla beðið eftir að ég var búinn í vinnuni og gat þá farið til vinar míns og spilað. þetta eru minningar sem ég gleymi aldrei :)