Ég var á leiðinni í 12 klukkutíma flug til Kuala Lumpur, þannig að ég keypti mér Metal Gear Solid fyrir gömlu Game Boy Color tölvuna. Pocket IGN gaf leiknum nefnilega 10/10, sem gerir hann að besta Game Boy leik allra tíma að mati IGN. Ég hef áður spilað MGS2 og þegar ég spilaði MGS á GBC þá varð ég hissa hversu góður hann var. Sagan er ótrúlega mikill þáttur í leiknum eins og í MGS2, og þótt það sé engin talsetning þá er þetta frábært. Leikurinn er líka mjög góður, karlarnir eru flottir, tónlistin er geðveik og svo eru hundruð VR missions sem eru ótrúlega skemmtileg. Þetta er besti GBC leikurinn sem ég hef spilað hingað til.

Einkun: 10/10<br><br>Wilhelm_o@hotmail.com