Ég ætla að byrja á því að taka það fram að ég er ekki Rivaldo ég er vinur hans, hann leyfir mér stundum að nota nafnið hans.
Ég var að velta því fyrir mér hvort engin áhugi væri fyrir því meðal íslenskra PS2 netspilara að búa til almennilegt íslenskt klan í SOCOM? Ég veit um nokkur íslensk klön sem öll hafa að meðaltali um 4 spilara, og þykir mér það heldur slappt. Því var ég að velta fyrir mér hvort ekki væri sniðugt að sameina þau klön, og aðra sem vilja undir einu flaggi, og búa til almennilegt íslenskt klan sem stenst samkeppni við klön annara landa! Ef að einhverjir netspilarar hafa áhuga þá endilega svariði og ef ráðamenn íslensku smáklananna lesa þetta líka, þá mega þeir gjöra svo vel að svara líka. Ekki senda nein skilaboð á Rivaldo, sendið heldur tölvupóst á oliverclotheshoff@hotmail.com.