Ég held að ég sé búinn að fara í allar raftækjabúðir á Stór-Reykjavíkursvæðinu að leita að Advanced SCART Cable fyrir Xbox (þessi með optical out) og það er enginn með hann.

Ég hringdi í Tölvudreifingu og þeir sögðust vera með hann en neituðu að selja mér hann, þeir selja aldrei til einstaklinga (svosem alveg skiljanlegt, þar sem þeir eru heildsalar). Samt frekar asnalegt að hann hafi ekkert brugðist við þegar ég minntist á að þetta væri ófáanlegt í öllum búðum sem ég hafði hringt í eða farið í.

Veit einhver hvort, og þá hvar, er hægt að nálgast slíkan kapal? Ef þið hafið séð hann í einhverri búð nýlega, endilega látið mig vita.<br><br>-nomaad
-nomaad