Milljón möguleikar (eða karakterar) en enginn möguleiki fyrir þá sem ekki hafa spilað þennan leik (hef ekki einu sinni heyrt um hann sjálfur). Held að sá sem gerði þessa könnun hefði mátt eyða meiri tíma í að bæta við öðrum valmöguleikum en bara leikjakarakterunum eins “Fleiri en einn”, “Get ekki gert upp á milli” og “Hef ekki spilað hann”. Ég hef ef til vill algjörlega rangt fyrir mér en ég gæti trúað því að mun fleiri hér á þessu áhugamáli hafi ekki spilað þennan blessaða X-Men leik heldur en þeir sem hafa spilað hann.

Ég er nú kannski örlítið grófur þegar ég segi þetta en mér finnst að stjórnendur ættu ekki einu sinni að samþykkja svona kannanir.