Cel shaped?? Square shaped?!?!! :p
Held að þú sért eitthvað afvegaleiddur vinurinn. Leikurinn er <b>cel shaded</b>. Hann styðst við skipanir og tækni sem kallast shaders, þeir stjórna því hvernig ljós varpast og endurkastast af hlutum. Til dæmis gerir metal shader hluti gljáandi og þannig að þeir endurkasta ljósi betur og fyrir vikið virðast þeir líta út fyrir að vera gerðir úr málmi.
Cel shading endurkastar ljósinu í mjög einföldum litum. Í stað þess að það komi mörg stig af skugga (og þar með mörg stig af sama litnum, ljósari eða dekkri) eru skuggarnir mjög heilsteyptir og fyrir vikið lítur hluturinn út eins og hann sé teiknaður því hann hann hefur yfirleitt bara eitt stig af lit.