Jæja góðir hálsar….
Fékk loksins eintakið mitt af MP í gær! Hafði því miður ekki tíma til að spila hann mikið þar sem ég fékk hann seint í gærkvöldi, en það sem spilaði var good shit!!

Fékk líka OoT bónus diskinn, er ekki búinn að prófa Master Quest og mun eflaust ekki gera það fyrren ég er búinn að klára OoT aftur.

Verst er að það er alveg vitlaust að gera í skólanum hjá mér akkúrat núna og því verð ég að halda mig frá að spila MP í (helst) allan dag ef allt á að ganga upp :(
Vinn það bara upp næstu daga og tek svo algera þriggja daga maraþon helgi í MP (aðallega), OoT og SSBM, og þá er ekki verra að vera með frí í skólanum á föstudeginum ;)

Mér skilst víst að margir af stjórnendum þessa áhugamáls fá sín NTSC eintök af MP í dag og því tilvalið fyrir þá að skella montinu sínu í þennan póst líka.