OK. Ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að bera mig að við að senda inn greinar. Þarf að gera eitthvað annað en einfaldlega að skrifa texta ýta á enter af og til og setja punkt á eftir setningu?!!!! Þarf eitthvað html? Ég spyr bara því að ég reyndi einu sinni að senda inn grein, sem var löng og vel birtingarhæf, en hún birtist hvergi. “hjálpin” hér á huga segir manni lítið sem ekkert og ég er bara einfaldlega of mikill auli til að fatta þetta sjálfur. Þess vegna bið ég um hjálp frá ykkur sem kunnið þetta betur og í staðinn skal ég senda inn vandaðar og vel stafsettar greinar.