Ég verð að fá að monta mig. Ég fékk loksins LOKSINS Xboxið á aðfangadag eftir langa og óþreyjufulla bið!

Ég gerðist svo djarfur að kaupa mér líka 32" Wide Screen 100Hz Sony sjónvarp á Þorláksmessu og átti fyrir Sony heimabíó.. Núna er bara kátt á hjalla! Xboxið í kvínandi botni á feitu sjónvarpi langt fram eftir nætur næstu daga, vikur og mánuði!!!! :) Mér líður eins og ég sé orðinn 10 ára aftur. hehe

Nú er bara að koma sér í gegnum leikina; Halo, Rallisport Challange, Sega GT2002, JSRF og Prisoner of war..!

Weeee… Over and out!
kv, Andri