Eins og fram hefur komið áður er ég að fá Xboxið mitt á aðfangadag og ég vill vera með allt reddý þegar að því kemur.

Ég er með heimabíó sem mig langar að tengja Xboxið við. Ég hefði vilja tengja það með optical snúru (ljósleiðarasnúru), en ég hef hvergi geta fengið upplýsingar um það hvort það sé optical útgangur á Xboxinu, eða hvort ég þurfi að kaupa einhvað sérstakt kit við til að geta gert þetta..?

Það væri frábært ef einhver getur sagt mér til um þetta…