ég veit að það er til fullt af síðum sem eru með lista yfir leiki bæði komna og ókomna en veit einhver um lista sem sýnir samanburð á PAL leikjum og US leikjum. Það böggar mig alveg óendanlega að vera að bíða eftir einhverjum leikjum sem síðan kemur í ljós að eru bara gefnir út í USA.

Ég verð að játa það að ég er ekki alveg að skilja tilganginn með regions á tölvuleikjum! Ég skil þetta með DVD þar sem enginn vill að við getum keypt DVD mynd sem á eftir að koma í bíó en með leikina er ég ekki alveg að fatta þetta.