Já það er hægt að komast undir ísinn í Zora domain. Og ég ætla að segja ykkur hvernig það er hægt:

Það fyrsta sem þú gerir er að fara að lake hylia. Næst dýfirðu þer niður að innganginum á Water tempel með iron boots on. Þú labbar síðan að innganginum en ferð ekki inn heldur stendur á miðri síðustu hellunni og snýrð þér til hægri eins og þú sért að horfa á vegginn.
Síðan tekurðu iron boots af og þú flýtur upp í gegn um lítið gat og um leið og þú sérð ekki Link lengur þá syndirðu svona tvö sundtök áfram þá ertu kominn undir vatsbottninn. Þú lætur strax á þig iron boots svo þú fljótir ekki alveg upp, þú hefur þau á þér í svona 5 sek og tekur þau síðan af. þú horfir síðan á mapið þá sérðu stöplana 4 eða 5 , þú syndir í átt til þeirra og þá sérðu svona soldið litlan, óljósan, svartan ramma. Þú syndir í átt til hans en passar að halda þér í réttri dýpt með því að setja og taka iron boots af til skiptis. Það sem þú þarft að gera er að komast soldið undir rammann því þú getur ekki bara synt beint á hann heldur verðuru að fara soldið undir hann því hann er holóttur undir.
Ef þetta tekst ertu kominn undir ísinn í Zora Domain. Þetta gæti verið svolítill vandi en ef þetta tekst ekki strax þá bara reynirðu aftur.

‘Eg vona að ég hafi skýrt þetta nógu vel út en ef það er eitthvað óljóst þá bara spyrjið mig.
Endilega reynið þetta.