Jæja ég hef verið í smá sambandi við ónefndan aðila hér í bæ varðandi leikjatölvumót og hann hefur rætt við ýmsa aðila sem hafa sýnt þessu áhuga. Ég ætla því að gera copy/paste af gömlu greininni minni ásamt viðbót og svo smá útskýringu á mótinu.

ATH: Þetta er bara hugmyndin. Það á eftir að bæta allt og bæta við ásamt því að fínpússa. Það sem kemur hér að aftan er e-mail sem ég sendi þessum aðila fyrir stuttu síðan. Ég ætla að sýna ykkur mailið í þeirri von um að þið sýnið að áhuginn er fyrir hendi af spilendum og áhugafólki. Notið svarmöguleikann sem hálfgerðan undirskrifarlista og komið með ykkar hugmyndir og athugasemdir.

Here I go…

———————————————- ——————–
<b> E-Mailið er hér í heild sinni: </b>
————————————————- —————–

<b> GREININ </b> <i>(Skrifuð þann 9. ágúst 2002 - 18:07:07 af jonkorn) -> Sjá svör við henni <a href="http://www.hugi.is/leikjatolvur/greinar.php?grei n_id=50506“> hérna </a> </i>
—————-
Mér datt í hug að spyrja ykkur hvort einhver áhugi væri fyrir þessu. En hugmyndin var sú að hafa smá svona mót milli hugara þessa áhugamáls og leikjatölvufrík yfir höfuð. Ég ætla að þylja upp hugmyndina hérna…

Í fyrsta lagi yrði þetta all console mót. Þ.e GameCube, Playstation 2 og Xbox. Jafnvel hægt að hafa GameBoy Advance með. Sennilega yrði aðgangsfé inná þetta, þ.e til að keppa og auðvitað yrði reynt að hafa þetta sem ódýrast. Það ætti að vera hægt að fá sponsor á svona held ég. BT? Skífan? Ormson? Tölvudreifing?

Það sem til þarf eru leikjatölvurnar sjálfar (sponsors?), aðstaða, sjónvörpin (sponsors?), stólar, matur, drykkir, sponsorar og svo framvegis. Svo að ef einhver ykkar veit um einhverja smugu til að redda einhverju af þessu þá láta vita.

Ég var að pæla í þessu á sem auðveldastan máta. Þetta yrðu bara þessar 3 leikjatölvur (+ GBA kannski) og fólk mundi borga X mikið fé fyrir hverja tölvu sem það keppir á. Sem dæmi væri 1500kr. keppnisgjald fyrir eina, 2500kr. fyrir tvær og fyrir að keppa á allar væri 3000kr. Þetta er bara dæmi ath! Skipt væri niður í hópa t.d 4 manna hópa sem myndu keppast um sigur í einhverjum leik, sem dæmi Super Smash Bros Melee, Gran Turismo eða hvaða leik sem valinn yrði. Leikir yrðu fyrirfram ákveðnir auðvitað.

Keppnisgjald væri fyrir leigu á aðstöðu því að leigja ágætlega stórt húsnæði er ekkert ódýrt.

Tökum sem dæmi ef það væri keppt í Gran Turismo 3 eða Concept, þá væri annað hvort keppt í 2 player eða Time Trial. Hver og einn fær 2-3 tilraunir og gildir besti tíminn. Skipt væri niður í flokka/riðla og þeir sem ná bestu tíma fara upp. Mjög einfalt og ég held að allir skilji þetta og þess vegna held ég að ég þurfi ekkert að útskýra þetta nánar. It´s been done before svo útskýring er varla þörf :)

Verðlaun væru vonandi frá sponsorum. T.d sá sem mundi vinna í sem dæmi GTC fengi inneignarnótu í BT (sem dæmi) og gæti valið sér leik eða hvað sem er. Mér datt í hug að Ormson væru með GameCube vinninga (leik fyrir 2-3 sæti en 1. sæti væri GC tölva + leikur), Skífan með Playstation 2 vinninga (leik fyrir 2-3 sæti, PS2 tölva + leikur fyrir 1. sæti) Tölvudreifing með Xbox vinninga (Xbox leik fyrir 2-3 sæti og Xbox tölva + leikur fyrir 1. sæti) og BT væru kannski með inneignarvinninga (fyrir leikjum t.d) eða DVD vinninga, þ.e DVD myndir. Bara sem dæmi. MadMax, any chance? Einnig væri gaman að fá einhvern pizzastað til að vera með bás á staðnum og gætu selt sneiðar á X krónur. Jafnvel fengið Vífilfell eða Ölgerðina til að vera með drykki.

Aðstaða yrði að vera nokkuð góð og nokkuð stór því ég er ekki frá því að það er áhugi á þessu og hann er hann ekki lítill, ef þið skiljið mig. Mig grunar alveg að það sé fólk þarna úti sem langar í Console-mót alveg eins og mörgum finnst gaman á Skjálfta og þannig mótum.

Endilega látið ykkar hugmyndir koma fram og látið vita ef þið hafi áhuga á svona. Eins og þið sjáið þá er þetta simple mót, ekkert frábrugðið öðrum leikjamótum nema hvað að þarna er ekki keppt á netinu, heldur við þann sem situr við hliðiná þér.

———————————————– ——————–
<b> GREIN LOKIÐ </b>
————————————————- ——————



<b> VIÐBÓT VIÐ GREIN: </b> <i> Sent inn sem svar í fyrrnefndri grein </i>
————————————————- ——————
það yrðu nokkrir leikir ekki bara einn. En persónulega þá yrði keppt um EIN lokaverðlaun í hverjum leikjatölvuflokk. Þ.e GC, PS2 og Xbox. Jafnvel spurning um hafa PSX og Dreamcast. Fullt af fólki sem á PSX og Dreamcast en ég held að málið sé GC, PS2 og Xbox. PSX leikir spilast á PS2 of course…

En anyways…

Fólk kemst upp í sínum riðli (sínum leik) og í undankeppni í þeim leik og þeir sem komast í úrslit fá að velja hvaða leikur verður spilaður. Þ.e ef það eru 4 manna úrslit þá fá þeir 4 að ákveða sín á milli hvaða leikur yrði fyrir valinu sem úrslitaleikur. Get it? Atkvæðagreiðsla meðal lokakeppenda. Það myndu t.d bara einn eða tveir vinna hvern leik (1. og 2. sæti) og þeir fara í úrslit. Sá sem vinnur fær auðvitað fyrstu verðlaun.
—————————————————– ————–

<b> ATH: </b>
Þar sem flestir, ef ekki allir, sem keppa á svona móti eiga tölvurnar og jafnvel leikina sem keppt er í þá væri kannski hægt að hafa þetta þannig að sigurvegari hvort sem er í t.d GameCube flokk eða Playstation 2 flokk og svo í Lokakeppni fengi að velja milli þess að fá tölvuleik/leikjatölvu (flokkakeppni) eða leikjatölvu/leik/annað (lokakeppni) eða hreinlega að fá gjafabréf í stað ákveðins leiks eða tölvunnar. Verðlaun væru fyrirfram ákveðin en vinningshafi mætti, ef möguleiki er á, velja gjafabréf sömu upphæðar hjá kostunaraðilum.

————————————————— —————-

<b> UPPSETNING MÓTS: </b> <i> (Tek Gamecube flokkakeppnina sem dæmi) </i>

<i> Flokkakeppni væri svona. </i>

<b> Forkeppni: </b> Sem dæmi að hafa 16 manns í hverjum flokk, ef 4 flokkar eru þá eru 64 spilendur til að byrja með.

** Flokkur 1 <i> (T.d Super Smash Bros Melee) </i>
-> 4 sigurvegarar -> Undanúrslit

** Flokkur 2 <i> (T.d Wave Race blue storm) </i>
-> 4 sigurvegarar -> Undanúrslit

** Flokkur 3 <i> (T.d Burnout) </i>
-> 4 sigurvegarar -> Undanúrslit

** Flokkur 4 <i> (T.d Super Monkey Ball) <i>
-> 4 sigurvegarar -> Undanúrslit

ATH: Ef flestir sækja um að fá að keppa í Super Smash Brosh. Melee þá væru 1. 2. og jafnvel 3. flokkur undir þann leik. Þetta væri allt sett upp eftir eftirsókn í ákveðinn leik.

<b> Undanúrslit: </b> 16 manna, 4 leikja undanúrslit

** Super Smash Bros Melee <i> (sem dæmi) </i>
-> Einn sigurvegari -> GameCube Úrslit

** Wave Race Blue Storm <i> (sem dæmi) </i>
-> Einn sigurvegari -> GameCube Úrslit

** Burnout <i> (sem dæmi) </i>
-> Einn sigurvegari -> GameCube Úrslit

** Super Monkey Ball <i> (sem dæmi) </i>
-> Einn sigurvegari -> GameCube Úrslit

<b> Úrslit: </b> 4 manna úrslit

Hér er komið að þeim þáttaskilum í mótinu þar sem sigurvegararnir 4 fá að velja hvaða leikur er spilaður í úrslitum. Tökum sem dæmi að Super Smash Bros Melee verði fyrir valinu. (ATH: 4 keppendur ef 4 flokkar eru, gætu verið fleiri. Magn lokakeppenda fer eftir fjölda flokka. Dæmi: 6 flokkar -> 6 lokakeppendur. Í þessu dæmi eru þeir 4). <b> Ef keppendur geta ekkert gert upp á milli sín hvaða leikur verður fyrir valinu sem ÚRSLITALEIKUR þá verður stjórn mótsins að ákveða það. </b> Þá væri kannski hægt að fara eftir því hvaða leikur var eftirsóttastur, <b>sem dæmi</b> Super Smash Bros Melee.

** Super Smash Bros Melee
Fyrsta lota:
Sigurvegarar 1 og 4 flokks mætast <i> (Dæmi: Nr. 1 vinnur) </i>
Sigurvegarar 2 og 3 flokks mætast <i> (Dæmi: Nr. 2 vinnur) </i>

Önnur lota:
Nr. 1 og 3 mætast <i> (Dæmi: Nr. 1 vinnur) </i>
Nr. 2 og 4 mætast <i> (Dæmi: Nr. 2 vinnur) </i>

Þriðja lota: Keppt um þriðja sæti
Nr. 3 og 4 mætast (Dæmi: Nr. 3 vinnur, þriðja sæti í GameCube flokk)

Fjórða og síðasta lota: Keppt um Fyrsta sæti
Nr. 1 og 2 mætast (Dæmi: Nr. 1 vinnur, fyrsta sæti í GameCube flokk)
———————————————– ——————–


<b> Vinningar: </b>
4 sæti: Coke vinningur (sem dæmi)
3 sæti: Coke vinningur og Dominos gjafabréf (sem dæmi)
2 sæti: Leikur eða gjafabréf frá ”sponsor“ (sem dæmi)
1 sæti: Leikur og leikjatölva eða gjafabréf sömu upphæðar og vinningur kostar frá ”sponsor“ ásamt Coke vinningi og Dominos pizzaveisla (sem dæmi)

<i> ATH: vinningarnir eru bara dæmi. Hverjir vinningar ættu að vera er bara samningsatriði við ”sponsora" auðvitað </i
Þetta er undirskrift