Fyrir nokkrum mánuðum fékk ég silent hill og ég hef sjaldan verið jafn spenntur í leik enda var ég ekki leingi að klára hann en eins og flestir sem hafa prófað þennan leik vita þá eru fjórir mismunandi endar á þessum leik, nú ég var með ending:bad og ég fékk fimm stjörnur í game ranking. ég er auðvitað mjög spenntur fyrir því að klára hann aftur því bæði veit ég að ég hef ekki séð helminginn af myndböndunum sem er sýnt úr í byrjun(áður en maður byrjar í leiknum)og ég veit líka um nokkra staði sem ég hef ekki komið á áður (eins og löggustöðina og og eitthvað lítið hús nálægt skólanum. þannig að ég save-a og byrja upp á nýtt í og þá er ég í normal(ég var í easy fyrir) en mér til mikkillar furðu þá er enginn munur á honum nema nokkur vopn sem ég var ekki með áður og ég kláraði hann með naumindum þar sem ég var ekki með rifilinn og aftur kemur ending bad, bara núna er ég með 11 stjörnur í stað 5.

Nú það er því greinilegt að maður þarf að spila hann öðruvísi til að hann endi öðruvísi þannig að mig langaði til að spyrja ykkur hvernig leikurinn endaði öðruvísi hjá ykkur og hvað ég á að gera til að fá hina endina.

það er annað sem hefur líka verið að bögga mig og það er plastflaskan sem ég fæ í eldhúsinu á spítalanum, ég var í bæði skiptin sem ég spilaði leikinn með hana alveg út leikin án þess að nota hana.