X-BOX ....Halo.... Jæja

Þá er ég buin að spila HALO í rúmlega 3 klukkutíma á X-box.

Ég verð bara að segja það að ég hef spila nánast alla fyrstu persónu skotleiki sem hafa komið, hvort sem það er á PC Vélar eða Console og eftir alla þessa hreynt út sagt frábæru leiki sem til eru á allar þessar vélar hef ég sjaldan gapað eins mikið eins og síðustu 3 klukkutímana. Leikurinn er að mínu mati svona eftir 3 klukkutíma spila með þeim allrabestu. Leikurinn byrjar mjög rólega og tekur þó nokkrun tíma að fylgjast með áður en hasarinn byrjar, en þegar hann byrjar er það eins og hellt sé yfir mann úr fötu, stanslaus hasar… ég ætla ekki að að telja upp hvað leikurinn hefur upp á að bjóða, hægt er að lesa það á ign og fleiri stöðum en eitt er víst að það er langt síðan eg hef skemmt mér svona mikið…

Svo fáið þið mynd af mér að leika mér í Mad Dash á X-box…

Ef einhver vill skal ég skella inn 1 eða 2 myndum af Halo með næst!! úje “Back to HALO”


MadMax