Ég vil taka það fram að það eru tvær ástæður fyrir skrifum mínum á þessari grein:
1) Ég hef enn ekki séð slíka á huga.
2) Það voru nokkrir notendur hér að spyrjast um þetta.

Þetta er kannski dálítið þunn og jafnvel slöpp grein en ég vil bara minna á að það er varla nóg efni til um þetta í heila grein nema maður fari einhvert langt út fyrir aðalatriði hátíðarinnar.



<b> Winter-Een-Mas </b>er er vikulangur hátíðisdagur tölvuleikja spilara (that’s you.)

Þetta snilldar fyrirbæri á sér stað daganna 25. jan. – 31. jan.

Winter-Een-Mas var búið til af meistara Tim Buckley árið 2003 í netmyndasögunni Ctrl-Alt-Del/Decline of Video Gaming (ég ætlast til að allir hérna kannist við þær…)

Þegar annarstaðar í heiminum hefur þessi hátíð verið viðurkennd af búðum og fyrirtækjum. Vonandi nær þetta fljótt til Íslands svo við fáum tilboðs og þemu daga í tölvuleikjaverslunum *sleeef*

Official búningur hátíðardaganna er svo: Kóróna, stafur með stýripinna (fjarstýring) ofan á og skikkja. Það er auðvelt og al-gott að búa til einn slíkan búning og klæðast sem mestan hluta hátíðarinnar. (Þið eruð svölust ef þið mætið svona í skólann/vinnuna… and you know it!)
Þegar maður hefur sett upp búninginn góða er ekki eftir neinu að bíða með að annaðhvort fara og fjárfesta í leik einum eða svo (hvenær er betri tími til þess?!?!) eða bara setjast í sófann, slappa af og spila tölvuleiki.

<b> Sjö dagar Winter-Een-Mas:</b>

Það er auðvitað ekkert betra og sniðugra þegar haldið er upp á Winter-Een-Mas en að heiðra anda hátíðarinnar með því að spila sem mest af tölvuleikjategund þeirra.

Dagarnir og þema þeirra eru þessir:

Dagur Eitt: Hasar-, platform- og ævintýraleikir.
Dagur Tvö: Fyrstu-Persónu-Skotleikir.
Dagur Þrjú: Bardagaleikir.
Dagur Fjögur: Raun-Tíma Hernaðarleikir.
Dagur Fimm: Bílaleikir.
Dagur Sex: Hlutverkaleikir.
Dagur Sjö: Íþróttaleikir.

<b> C-A-D Winter-Een-Mas sögurnar </b>so far eru þessar (hvenær er betri tími til að lesa þær en nú?):

2003: http://cad-comic.com/comic.php?d=20030127
Ethan finnur upp Winter-Een-Mas

2004: http://cad-comic.com/comic.php?d=20040107
Ethan reynir að dreifa Winter-Een-Mas gleðinni þrátt fyrir litlar vinældir hennar.

2005: http://cad-comic.com/comic.php?d=20050103
Winter-Een-Mas hefur náð töluverðum vinsældum og eftirtekt en maður að nafni Josh reynir að eigna sér heiðurinn.

2006: http://cad-comic.com/comic.php?d=20060104
Illir gaurar ræna Lilah og reyna að þvinga Ethan í að gefa sér réttinn á hátíðinni.

2007: http://cad-comic.com/comic.php?d=20070101
Ethan byggir hinn fullkomna hægindastól fyrir leikjaspilun.

Jæja þetta var grein mín um hina frábæru, frábæru hátið - sem er eins gott að þið haldið upp á eins mikið og þið getið! Bastarðar… :Æ

Takk, takk.

<b> Og munið að fá sem flesta til að halda daganna hátíðlega</b>. The Gaming Gods be with you… *veif*